Guðjón Hólm Sigurðsson
Tölvunarfræðingur tilbúinn til starfa við þróun hugbúnaðar og samskiptastaðla fyrir tæki
ADDRESS | Háseyla 27 260, Reykjanesbær, Ísland |
---|---|
PHONE |
8225470 |
WEBSITE |
2021 desember - til dagsins í dag
Tölvunarfræðingur, Tern Systems ehf 105, Reykjavík
2016 maí - 2021 desember
Tölvunarfræðingur, Advania ehf 105, Reykjavík
2016 Janúar - 2017 Desember
Aðstoðarkennari í Vefforritun II, Háskóli Reykjavíkur 102, Reykjavík
2016 Ágúst - 2017 Desember
Aðstoðarkennari í Gagnasafnsfræði, Háskóli Reykjavíkur 102, Reykjavík
2001 - 2017
Eigandi, sala, markaðssetning, bókhald, forritun og viðhald tölvukerfis, Undri ehf 260, Reykjanesbær
1998 - 2001
C++ Forritari, Netverk ehf 105 Reykjavík
1989 - 1997
Ýmis vinna, sjómaður, stýrimaður og önnur vinna sem ekki kemur þessari umsókn mikið við, Ýmis fyrirtæki
1984 - 1988 sumar
Sumarstarfsmaður í fiski (í tækjum og á fiskvinnslulínu), Rafn hf, Jón Erlingsson ehf., Miðnes ehf. 245, Suðurnesjabær
2014 - 2016 • Háskólinn í Reykjavík • 102, Reykjavík
Tölvunarfræði BS
1996 - 1998 • Tækniskóinn • 101, Reykjavík
Tölvubraut
1991 - 1992 • Tækniskólinn(Sjómannaskólinn) •101, Reykjavík
350 tonna skipstjórnarréttindi
Í Tern vann ég að tveimur verkefnum. Annarsvegar TAMS AMHS og hins vegar ROFDS. Bæði verkefnin fjölluðu um að taka eldri 32-bita kóða sem skrifaður hafði verið í Qt (cpp) fyrir stýrikerfið RedHat 6 og þýða hann yfir í 64-bita kóða fyrir annarsvegar Centos 8.5 og hins vegar Rocky Linux 8.10. Þar sem stýrikerfin breyttust mikið þá þurfti að búa til nýtt uppsetningaferli fyrir verkefnin. Við settum þau í Jenkins svo hægt var að byggja og gefa út sjálvirkt við hverja kóðabreytingu. Verkefnin gáfu mér mjög góða þekkingu á Linux, C++, CMake, Networking, Jenkins, Bash scripting, Ansible og AsciiDoc, svo eitthvað sé nefnt. Einnig skrifaði ég og gaf út í mínum frítíma Sheller vscode viðbótina https://marketplace.visualstudio.com/items?itemName=guttih.sheller þegar ég vann að þessum verkefnum til að auðvelda mér alla bash skriftun.
I Advania hóf ég störf sem framendaforritari í vefsíðugerð. Seinna færði ég mig svo í bakendaforritun. Ég er vel að mér í JavaScript, C#, C++, NestJS, GraphQL, React og fleiri platformum sem flestir nenna ekki að muna 😊. Ég vann hjá Advania síðan 2016 þar sem ég var m.a. leigður þaðan sem verktaki til Íslandsbanka, Símans og Valitors(nú Rapyd). Mest af minni vinnu var í C# forritun bæði bakenda og framenda. Hjá Valitor var ég í 2 ár og öll vinna var þar í C# og þá í bakendaforritun og gluggaforritun(Desktop app). Einnig vann ég í um ár að Vörulista Vefþjónusta (https://island.is/s/stafraent-island/vefthjonustur) þar sem við skrifuðum einnig þróunarhandbók (https://island.is/s/stafraent-island/throunarhandbok) vefþjónusta í sama verkefni.
Í Netverk vann ég í þróunardeild hugbúnaðar. Þróunin fór fram eingöngu í C++ og þá bæði glugga og console forritun. Vann að GPS Server sem las staðsetningu skipa frá GPS tæki og skráði í gagnagrunn og gaf aðgang að þeim með SQL skipunum í gegnum tölvupóst. GPS Retriever gaf skipa eiganda möguleika á að fylgjast með skipum sínum í gegnum gervihnött/tölvupóst. Þróaði einn vef og WAP forritun einnar af vörum fyrirtækisins WapStar. Ég vann einnig við þróun uppsetningar hugbúnaðar og sjálfvirknivæðingu byggingarferla(build process). Fór yfir allan hugbúnað fyrirtækisins til að geta endurskírt hann fyrir mismunandi kúnna (re-Branding).
Ég hef haldið kynningar til að miðla þekkingu og/eða til að ná verkefnum í útboði frá ríkinu(island.is) og öðrum fyrirtækjum. Ég hef einnig haldið kynningar til að kynna mig sem tilvonandi verktaka hjá öðrum fyrirtækjum. Ég tel mig geta vel miðlað þekkingu fái ég tíma til undirbúnings. Ég á auðvelt með að vinna í hóp, og síða 2016 hef ég eiginlega eingöngu unnið eftir Agile aðferðafræðinni sem mér líkar vel.
Mitt aðaláhugamál er forritun fyrir tæki (IOT). Ég held út vefhópnum Arduino Ísland (https://www.facebook.com/groups/arduinois) sem hefur nú um 1.300 meðlimi.
Ég hef gert ýmis myndbönd um mitt grúsk sem má skoða á youtube síðu minni: https://www.youtube.com/guttih og https://www.youtube.com/user/arduinois. Margt annað hef ég brallað, sem má þá finna á heimasíðunni minni eða þá á https://github.com/guttih . Fyrir tækin hef ég skrifað í Arduino core fyrir örtölvuna Esp32 sem er ekkert annað en C++ forritun. Ég bjó til wifi water-mixer sem gefur mér vefaðgang að heita pottinum mínum. Ég hannaði prent-plötuna(pcb), lóðaði, setti saman og skrifaðu forritið sem stjórnar þremur vatns lokum og les hita og þrýstinema fyrir pottinn. Nýjasta verkefnið mitt er gæludýra-mata-skammtari https://gitlab.com/guttih/food-dispenser